Archived entries for productivity

Pap­pírsstærðir

Ég held að það sé best að hafa enn einn stað sem hægt er að leita eftir algen­gustu pap­pírsstærðunum, A stærðum, samkvæmt DIN og ISO stöðlum sem við notum mest. Öll mál í mil­limetrum og ég ekki góður í að gera töflur í html kóða eins og sést.

A0 841 x 1189
A1 594 x 841
A2 420 x 594
A3 297 x 420
A4 210 x 297
A5 148 x 210
A6 105 x 148
A7 74 x 105
A8 52 x 74

Mail : Kalkipap­pír, cc og bcc

TYPistFyrr á árum var notaður kalkipap­pír milli tveg­gja blaða í ritvél til þess að búa til afrit af aðal­blaðinu. Svona afrit heitir Car­bon Copy og af því er dregið þetta cc sem fólk notar mikið í tölvupósti. Afrit af tölvupóstinum til ein­hvers annars en þess sem fær aðalpóstinn. Con­tinue reading…

GTD – hvað er nú það?

GTD_MoleskinDiaryGTD eða Get­ting Things Done er kerfi til þess að hjálpa fólki að koma verkum í framkvæmd sem annars vilja daga uppi. Ker­fið var tekið saman af manni sem heitir David Allen. Hann er að sjáf­sögðu Ban­darík­ja­maður og ég geri ráð fyrir því að hann sé orðinn vel efnaður á þessu. Con­tinue reading…

Apple : Leitar­möp­pur, Smart Folders

Fyrir­bæri sem kallað er Smart Folder er hen­tugt til mar­gra nota. Snilldin í þes­sum möp­pum er fyrst og fremst sú að þær eru eins konar leitar­möp­pur. Maður skil­greinir hvað maður vill að birtist í henni, hvar á að leita, hvers konar skjöl og svo framvegis rétt eins og þegar maður leitar með sla­ufa + F. Con­tinue reading…



Copyright © 2004–2009. All rights reserved.

RSS Feed. This blog is proudly powered by Wordpress and uses Modern Clix, a theme by Rodrigo Galindez.