Nýrri útgáfu af InDesign var fleytt af stað í gær, 20. október 2020. Útgáfan er númeruð 2021. Þetta kallar á nýja útgáfu af Hunspell innsetningunni. Ég hef unnið að henni síðustu vikurnar en það var ekki ljóst fyrr en í gærkvöldi með síðustu smáatriðin svo ég gæti klárað innsetningarforritið.
Þetta hefur verið bísna fróðlegt og skemmtilegt ár að reka svona búð á netinu. Ótal mál hafa komið upp hjá fólki og flest vandræði er hægt að leysa með því að lesa leiðbeiningarnar, bæði sem birtast við innsetninguna og/eða þær sem eru hér á síðunum. Ég er búinn að endurskrifa smáatriði í leiðbeiningunum til þess að loka öllum götum. Ekki hika við að senda mér póst samt ef eitthvað er óljóst.
Annað sem kemur einstaka sinnum fyrir er að hlekkurinn fyrir niðurhalið er útrunninn ef fólk bíður með að hala niður. Það borgar sig að vera ekkert að bíða með það.

Talandi um búðir, þá er ég að undirbúa að bæta aðeins við vöruúrvalið. Það gæti gerst innan tíðar og fólki verður ekki drekkt í auglýsingaflóði. Það verður tilefni í annan póst. Sem stendur eru póstar varla nema árlega 😀

Hunspell fyrir mac er á sama stað og vanalega: https://lausnir.myshopify.com. Windows útgáfa er í vinnslu og kemur von bráðar.