Ef einhver spyr þá tók það mig ekki sex vikur að skrifa þennan smápistil. Það er bara oftast mikið að stússast á þessum árstíma og ekki alltaf auðvelt að ná nokkrum mínútum í að skrifa. En nú er þetta allt að koma.
Reyndar er kannski aðeins of að segja nokkrar mínútur því stundum er ég marga klukkutíma með eina grein. Það er mjög auðvelt að blaðra út í loftið og fullyrða að eitthvað sé svona og svona, en þegar maður sest niður og ætlar að setja það sama á netið er vissara að kanna bak og fyrir hvort einhver fótur sé fyrir þessu.
Svona til að koma mér af stað aftur langar mig að byrja á því að bísnast aðeins yfir skiltum hér og þar. Ég vil alls ekki vera að stilla mér upp sem einhvers konar leturlöggu, en þess vegna er dálítið gaman að minnast á skiltið á skrifstofuhúsi Ríkislögreglustjóra. Continue reading…