Letur : Bil milli stafa, Kerning

LETbracketÞrátt fyrir að fle­stir þeir sem teikna letur vandi sig við að láta letrið skri­fast með jafnri áferð er engu að síður mjög erfitt að láta allt ganga upp. Annað af því hel­sta sem þeir gera þegar þeir hanna letrið er að reyna að stilla rýmið í kringum hvern staf Met­rics þan­nig að það sé nánast sama hvaða staf maður setur svo niður næst að hann falli vel að og í heil­d­ina fái maður jafna og eðlilega áferð á textann.

Það sem á van­tar er bætt upp með því að setja svoköl­luð Kern­ing Pairs inn í letrið. Kern­ing Pairs er ekkert sem maður sér í letrinu sjálfu, hel­dur eru þetta töflur sem fal­dar eru inni í letrinu og virk­jast aðeins þegar tiltek­nar stafasam­stæður eru skri­faðar. Sem dæmi um algen­gar stafasam­stæður eru Va, Ta, Ya og VA. Og reyn­dar miklu fleiri.

Það er æði mis­jafnt hvað langt er gengið í að setja þes­sar sam­stæður inn og hve mar­gar þær eru. Þegar best lætur skipta þær þúsun­dum. Svo hefur maður letur sem hafa engar og allt þarna á milli. Stun­dum rekst maður á til­felli þar sem stafasam­stæðan Va er í fínu lagi en ekki sem dæmi.

Fle­stir leturhön­nuðir sem ég hef séð tala um þetta, telja að þessi hluti vin­nun­nar við að hanna letur taki yfir­leitt ríflega helm­ing tímans. Það er því ekki að undra að ein­hver­jir nenni ekki að fást um þetta.

Það sem enn á van­tar upp á að letrið virki við allar aðstæður verður maður að laga sjál­fur. Hön­nuði skip­tir þetta líka mis­miklu máli. Það er ekki svo ósjal­dan að maður sjái auglýsin­gar, skilti eða jafn­vel bókakápur þar sem engu hefur verið skeytt um stafa­bilin svo að stin­gur í augu. Pínu sor­glegt en þó satt.

Í Illus­tra­tor, InDe­sign og Pho­to­shop er þægi­leg hnap­pask­ipan til þess að flýta fyrir sér í þessu.

Í fyrsta lagi, ef maður vill þétta eða gleikka bil milli mar­gra eða allra stafa í set­ningu er valið það sem maður vill breyta. Þá er haldið niðri val­h­napp­num, Option, og hægri og vin­stri pílurnar notaðar til þess að draga saman eða víkka út. Þetta er kallað á ensku Track­ing.

Vilji maður laga Kern­ing, sem er bil milli ein­sakra stafa er bendillinn set­tur milli stafanna og sama skipun notuð, vah­nap­pur + hægri/vinstri píla.

Oft þarf maður að breyta mjög miklu og þá má bæta við hoph­napp­num, Shift, til þess að tífalda virkn­ina og verður þetta þá Option + Shift + hægri/vinstri píla.

Að auki er rétt að minna á að í for­ritsstill­ingunum, Pref­er­ences, er hægt að stilla hve langt í einu píluh­nap­parnir færast við hvert smell.

Þá er bara að ráðast á næstu fyrirsögn og reyna að láta hana verða fal­l­e­gri með því að fikta svona í henni. Ein­hver­jir kynnu líka að hafa áhuga á að prófa æfin­gar á vef­síðu Uni­ver­sity of Delaware, en þar er sérstak­lega skemmti­leg æfin­gasíða í þessu. Maður getur tekið fyrir ein­stök orð og svo borið saman við niðurstöðu sem ein­hver ken­naranna hefur sett upp. Og svo fær maður einkunn. Orðið MEXICO hér fyrir neðan er ein­mitt úr einni af æfin­gunum. Kíkið á þetta.

LETmexicospacing

  • Share/Bookmark