AA : PDF eyðublöð – jafnvel í Reader

Hið eitursnjalla forrit Adobe Acrobat getur meðal margra annarra hluta búið til eyðublöð (Forms) með reitum til að skrifa í eða haka við.

Hið eitursnjalla forrit Adobe Acrobat getur meðal margra annarra hluta búið til eyðublöð (Forms) með reitum til að skrifa í eða haka við.
iWork 08 er nýlega komið út eins og alþjóð veit. Þetta er engin smá uppfærsla frá iWork 06.
Ég er einn af þeim sem hef beðið eftir Numbers í áraraðir, en sterkur orðrómur hefur gengið í mörg ár að Apple ætti til grunn að svona töflureikni einhvers staðar í kistunni. Ég er búinn að yfirfæra nokkur svona skjöl sem ég er alltaf að nota, úr Excel yfir í Numbers og verð að segja að mér finnst breytingin verulega til batnaðar. Mér líður miklu betur í augunum. Continue reading…
Eitt af því sem gerir það að verkum að mér líkar svo miklu betur við makkana en pc eru þessir innbyggðu pdf möguleikar.
Með þessu á ég til dæmis við þann eiginleika að geta búið til pdf skrá úr hvaða skjali sem er í hvaða forriti sem er svo fremi að forritið bjóði upp á prentun yfir höfuð. Eftir að maður áttar sig á þessum kostum fer það bara eftir hugmyndaflugi hvers og eins hvernig hann nýtir þetta. Continue reading…
Vefsíða ein sem heitir freelanceswitch.com hefur tekið saman yfirlit yfir 12 tegundir viðskiptavina byggt á hegðun þeirra.
Það er alltaf gott að geta flokkað viðskiptavini svona gróflega og eins að hafa í huga að manns eigin viðbrögð séu í samræmi við hvernig þeir eru, það er að segja ef maður vill halda í þá.Mismunandi manngerðir og hegðun kallar á jafnmörg og mismunandi viðbrögð frá okkur svo samstarfið geti verið með sem bestu móti. Continue reading…
Í riti sínu De finibus bonorum et malorum, (Endalok góðs og ills), skrifaði Cicero:
Neque porro quisquam est qui dolorem ipsum quia dolor sit amet, consectetur, adipisci velit. (Lauslega þýtt: “Engum líkar sársauki sjálfs hans vegna, leitar hans eða óskar hans, aðeins vegna þess að hann er kvalarfullur… “).
Af og til þarf maður að ná út texta út úr Illustrator eða FreeHand vegna þess að textinn í skjölunum er sá nýjasti og mest yfirlesni. Þetta var svo auðvelt hér á árum áður en nú er þetta aðeins flóknara.
Ég nota næstum hvern einasta dag skjáskot, það er að segja, myndir af því sem sést á skjánum, heilum gluggum eða hluta. Einnig, og það er það sem ég nota mest, er að taka t.d. skot af því sem ég er að vinna í Illustrator og líma það inn í Photoshop til staðsetningar. Eins nota ég skjámyndir í Illustrator í sama tilgangi.
Skjámyndir eru bara í 72pt upplausn, en þegar maður er búinn að teygja myndina á layer í Photoshop er hún furðuskýr þótt stækkunin sé margföld. Continue reading…
Copyright © 2004–2009. All rights reserved.
RSS Feed. This blog is proudly powered by Wordpress and uses Modern Clix, a theme by Rodrigo Galindez.