2007 Ítalía : Amalfi
Nú er að koma sér yfir til Amalfi strandarinnar. Þetta er tæplega 400 km leið og þegar við komum þangað verðum við búin með mest af akstri ferðarinnar. Continue reading…
Nú er að koma sér yfir til Amalfi strandarinnar. Þetta er tæplega 400 km leið og þegar við komum þangað verðum við búin með mest af akstri ferðarinnar. Continue reading…
Internetsambandið á Hotel President er ágætt að flestu leyti nema helst að styrkurinn er ekki góður inni á herbergi. Í lobbíinu er hann fínn en ég hef ekki tíma til að ganga alveg frá pislunum til að senda þá í loftið. Ég nenni hvorki að hanga í lobbíinu eða inni á herbergi og það er útilokað að vinna með tölvu utandyra í sólskini. Stikkorð skrifuð með penna í bók eru uppistaðan í skriftunum. En það er ágætt að geta fylgst með pósti svona til að byrja með að minnsta kosti og kíkja á nokkrar fyrirsagnir á mbl.is
Hótelið er annars stórfínt fyrir þennan pening. Stór loftkæld herbergi og hrein. Reyklaus hæðin sem við erum á. Hótelið er greinilega vinsælt fyrir ráðstefnur. Það tekur okkur um það bil tíu mínútur að ganga alveg að miðju borgarinnar og staðsetningin fín að því leyti. Bílahús er í kjallaranum ýmis önnur þjónusta. Continue reading…

Dagurinn fór rólega af stað. Sumarfrí eru oft eiginlega tímalaus en ég veit þó að það er laugardagur. Við ákváðum enn að sleppa morgunmatnum á hótelinu og koma okkur út á strönd. Það er alveg gráupplagt, Continue reading…
Þetta er í fyrsta skipti síðan ég man ekki hvað, að við hjónin förum saman án krakkanna í sumarfrí. Við höfum ákveðið að slappa verulega af í þessu fríi. Sem við höfum reyndar alltaf gert. Það þýðir þó ekki að við ætlum að hanga endalaust á strönd eða eitthvað því um líkt. Afslöppun er líka skilgreiningaratriði — við gerum það sem okkur sýnist og þurfum ekki að hugsa um neina aðra. Það er eiginlega það sem ég er að meina. Continue reading…
Við sváfum af okkur morgunmat hótelsins. Það er reyndar oftast ekki eftir miklu að slægjast í þeim efnum hvort eð er. Eftir að við vorum komin á lappir brugðum við okkur á strönd hérna 12 km. austan við Lecce. San Cataldo er lítill strandbær sem snýst að því er virðist eingöngu um þessa strönd. Ferðamannastraumurinn er líklega ekki eins mikill og víða annars staðar á Ítalíu eða þá að hann er ekki byrjaður fyrir alvöru. Það er í það minnsta nóg pláss á ströndinni og við deilum þessum hluta hennar með svona tíu öðrum — Ítölum. Continue reading…
Þegar við lentum í Róm fórum við á hótel Ibis sem er í svona 15 km fjarlægð frá flugvellinum. Flugvélin lenti það seint um kvöldið að við ákváðum að staldra þarna við um nóttina. Ibis var ágætis kostur þótt þetta séu nú ekkert sérlega skemmtileg hótel nema til þessa brúks. Rúmin mættu vera aðeins mýkri en herbergin eru mjög hrein og rúmgóð. Continue reading…
Nú hendi ég mér í sumarfrí í þrjár vikur. Megnið af tímanum verð ég og konan mín á þessum slóðum sem dregnar eru upp á þetta kort.
Um það bil sem þessi pistill fer í loftið ætti ég að vera að lenda í Róm. Leggjum svo af stað suð–austur á bóginn til Lecce. Í fyrsta skammti Continue reading…

Myfonts.com er vefur sem allir leturáhugamenn ættu að hafa í bókamerki hjá sér. Mánaðarlega senda þeir út fréttabréf þar sem þeir kynna letur mánaðarins undir formerkjunum Rising Stars. Hægt er að skrá sig hér til þess að fá fréttabréfið og skoða eldri bréf sem maður kynni að hafa misst af. Continue reading…
Það fór sem mig grunaði að enginn tími var til þess að skrifa pistla. Ég kom heim á mánudaginn var, 15. janúar og hef aldrei áður verið haldinn eins mikilli þotuþreytu.
Í stuttu máli var þessi ferð aðeins meira en að fara á MacWorld sýninguna í San Francisco sem haldin var 7.-12. janúar. Ég hafði samþykkt að taka þátt í ferðalagi nokkurra félaga sem ég hef þekkt í gegnum netið, suma í allt að tíu ár. Continue reading…
Nú er komið að lokadeginum. Farið í flugið um áttaleytið í kvöld. Þannig að kvöldmaturinn verður allt að því óætur flugvélamatur hjá American Airlines. Beef or chicken? Ég er ennþá að spá í hvorn réttinn ég álpist á.
Við Linda tókum leigubíl þvert yfir miðbæinn og gengum um hverfið San Telmo. Við hefðum reyndar átt að gera það á laugardegi því þá er líf og fjör þar, dansað á torgum og allt vitlaust. Það var samt alveg nóg af fólki en minna um dans. Ég er svo sem búinn að sjá nægju mína af tangó í bili. Continue reading…
Copyright © 2004–2009. All rights reserved.
RSS Feed. This blog is proudly powered by Wordpress and uses Modern Clix, a theme by Rodrigo Galindez.