Archived entries for apple

Fín­still­ing á hljóði

volumesetting Það kemur stun­dum fyrir að maður er að hlusta á eit­th­vað í tölvunni stil­lir tón­styrkinn með hnöp­punum á tölvunni. Þá vill oft brenna við að eitt hopp upp er of hátt en hopp niður of lágt.

Þá er ágætt að vita af því að hvert þrep á myn­dinni sem kemur upp er með fjögur stig til þess að auka nákvæmn­ina. Þes­sari fín­still­ingu nær maður með því að halda niðri Shift + Option hnöp­punum um leið og maður smellir á hljóðhnappana.

Það er alltaf verið að færa þessa happa til: F4 og F5 á sumum hnap­paborðum, F10 og F11 á öðrum eða efst á talnaborðinu á enn öðrum hnappaborðum.

Leop­ard 10.5.2 og Font­Ex­plor­erX virka ekki alveg saman

Í gærkvöldi kom uppfærsla á Leop­ard upp í útgáfu 10.5.2. Þetta er risauppfærsla sem lagar ýmis smá­van­damál og ein­nig sértæk van­damál sem kan­ski örfáir hafa lent í.

En ekki er sopið kálið … Mér finnst rétt að benda á að eftir að fjöl­mar­gir pós­tar hafa verið set­tir á netið síðan uppfærslan birtist þessa efnis að þessi uppfærsla er sett inn myn­dast árek­stur ef Font­Ex­plor­erX er látið ræsast með tölvunni.

Þetta lýsir sér þan­nig að Adobe for­ritin svo sem Illus­tra­tor og InDe­sign og jafn­vel ein­hver fleiri ná ekki að ræsa sig ef Font­Ex­plorer er ræst á undan.

Con­tinue reading…

Skyn­diskoðun á letri með Quick Look

Apple.com hel­dur úti síðu þar sem tal­dar eru upp hel­stu atriði sem þeir vilja vekja athygli á í útgáfu 10.5, Leop­ard.

Ég er rétt byr­jaður á að kíkja á þessa síðu en þar gefur að líta gríðar­legan fjölda nýjunga og betrum­bóta. Síðan er með meira en 300 atriði ekki komast fyrir í kyn­ningarmyn­dskeiði. Og samt er ekki allt upp talið.

Con­tinue reading…

A Quick Look at your fonts

Apple’s site, apple.com has a page where new fea­tures of Mac OsX 10.5, Leop­ard are explained.

I’ve just started to gaze through this stuff. 300+ new or changed fea­tures is more than enough to jus­tify the upgrade. It is, by the way, much cheaper to upgrade from Tiger to Leop­ard than lets say from Win­dows XP to Win­dows Vista. Con­tinue reading…

Frá Tígur í Hlébarða — MacOS X 10.5

Leopard
Tveir sætir!

Það var alveg sérdeilis vel til fundið hjá Apple að leyfa sölu á Leop­ard (frb.: lep­pard) strax að ræðu Steve Jobs lokinni. Lík­lega hefðu mátt vera til sölu fleiri diskar miðað við myn­d­ina sem birtist í Mog­ganum daginn eftir. Con­tinue reading…

Apple Keynote með OmniOutliner

iWork 08 er nýlega komið út eins og alþjóð veit. Þetta er engin smá uppfærsla frá iWork 06.

Ég er einn af þeim sem hef beðið eftir Num­bers í áraraðir, en sterkur orðró­mur hefur gengið í mörg ár að Apple ætti til grunn að svona töflureikni ein­hvers staðar í kistunni. Ég er búinn að yfir­færa nokkur svona skjöl sem ég er alltaf að nota, úr Excel yfir í Num­bers og verð að segja að mér finnst breytin­gin verulega til bat­naðar. Mér líður miklu betur í augunum. Con­tinue reading…

Draga íkona til og frá

dragicon

Allir þekkja tákn­myn­dirnar sem eru við hliðina á nafni skjalanna. Þes­sar tákn­myn­dir eða íkon eru til þess ætluð að segja manni í hvaða for­riti maður er að vinna. Það er ágætis mál því mörg for­rit líta svipað út. Con­tinue reading…

PDF : Pdf úr hverju sem er

Eitt af því sem gerir það að verkum að mér líkar svo miklu betur við makkana en pc eru þes­sir innbyg­gðu pdf möguleikar.

Með þessu á ég til dæmis við þann eigin­leika að geta búið til pdf skrá úr hvaða skjali sem er í hvaða for­riti sem er svo fremi að for­ri­tið bjóði upp á pren­tun yfir höfuð. Eftir að maður áttar sig á þes­sum kos­tum fer það bara eftir hugmyn­daflugi hvers og eins hvernig hann nýtir þetta. Con­tinue reading…

Mail : winmail.dat viðhengi

omic
Fle­stir kan­nast við viðhengi sem heita ein­faldlega winmail.dat og koma í pósti frá Out­look noten­dum.
Mail les ekki þessi viðhengi. Ef maður reynir að opna þau í textafor­riti kemst maður stun­dum að því að það er verið að senda manni fun­dar­boð eða eit­th­vað slíkt en oftast er ekki mikið að græða á því sem maður sér þarna inni. Frekar þreytandi.

Apple er með síðu þar sem þetta mál er útskýrt að hluta og stungið er upp á því að haft sé sam­band við sen­dan­dann og hann beðinn um að breyta forminu á sendin­gunni. En gerir maður það? Vandinn er nú eigin­lega okkar megin.

To avoid see­ing these attach­ments in the future, you ask the sender to des­e­lect the email’s “Send to this recip­i­ent in Microsoft rich text for­mat” check­box or pref­er­ence set­ting in mail client before they send the message.

Ungur for­ri­tari í Aus­tur­ríki hefur smíðað tól til þess leysa upp þessi winmail.dat skjöl. Þessi viðbót er OMiC. OMiC breytir meðal annars fun­dar­boðum úr Out­look yfir í ven­ju­leg iCal fun­dar­boð, breytir heim­il­is­fan­gaup­plýsingum í skil­jan­legt form og fleira.

Þessi litla viðbót er tvímælalaust gagn­leg í blön­duðu tölvu­umhverfi og kostar ekki nema 10 evrur.

Apple : Á slóðum RSS

RSSlogo
Mar­gir eyða óheyri­legum tíma á net­inu. Ég er þar lík­lega engin undan­tekn­ing en fer þó eftir því hvernig maður skil­greinir óheyri­legt. Aðrir eyða ekki minni tíma í að horfa á sjón­varp og margt af því ekkert sér­lega upp­byg­g­jandi. Raun­veruleikaþæt­tir eða íþrót­tir og ýmis konar afþrey­ing. Ég get alveg verið án þess hát­tar sjón­varpsef­nis — Con­tinue reading…



Copyright © 2004–2009. All rights reserved.

RSS Feed. This blog is proudly powered by Wordpress and uses Modern Clix, a theme by Rodrigo Galindez.