Stór viðhengi

Allir þurfa einhvern tíma að senda stór skjöl til einhvers annars yfir netið.
Það fyrsta sem manni dettur í hug er að sjálfsögðu að senda þau sem viðhengi í pósti. En ef maður er að tala um stór viðhengi, segjum yfir 30 megabæt er þessi hugmynd ekki alltaf svo góð. Mörg fyrirtæki eru með stærðartakmarkanir á fyrir þau viðhengi sem mega koma inn á póstþjóninn og því getur maður fengið póstinn í hausinn aftur. Þá eru líka einstaklingar oft með mjög lítið rými í póstinum sínum og mega illa við að fá stórar sendingar af þeim sökum.
Mörg fyrirtæki sem þurfa reglulega að taka við stórum skjölum setja upp ftp –þjóna til að taka við þeim. Það virkar fínt í flestum tilfellum en þegar maður er að senda bara eitt skjal til einhvers í eitt skipti finst manni þetta tiltölulega mikið vesen. Aðgangsorð og það allt sem þarf að setja upp svo hægt sé að senda. Aðrir eru hreinlega ekki með ftp.
Til er önnur og mjög þægileg leið. Hún lýsir sér þannig að maður skráir sig í ókeypist þjónustu (ókeypis upp að ákveðinni stærð). Sendir skjalið inn á þessa þjónustu. Viðtakandinn fær tölvupóst sem segir að skjal bíði hans og slóð með sem hann klykkir á.
Mjög misjafnt er hve stórar svona sendingar mega vera en algengt er að særðin sé einhvers staðar á bilinu 100 megabæt til 1 gígabæt. Ókeypis þjónustan miðast við að sent sé eitt skjal í einum og þarf þá að pakka saman nokkrum í eitt eða senda margar sendingar. Hérna nefni ég til sögunnar nokkrar af þessum þjónustum. Þar af er ein íslensk.

YouSendit hefur náð einna lengst í þessari þjónustu. Þar er boðið upp á að senda allt að 100 MB skjölum ókeypis en allt að 2 GB gegn 10 dollara mánaðargjaldi. Í ókeypis þjónustunni er skjalið geymt þar til það er sótt en eyðist svo sjálfkrafa.
Boðið er upp á viðbætur sem tengjast beint inn í iPhoto, Photoshop, Acrobat og fleiri forrit. Nýlega byrjuðu þeir að bjóða upp á sjálfstætt forrit til samskiptanna.

DropSend býður upp á að senda alls fimm sendingar á mánuði ókeypis og skjalastærð allt að 1 GB en geymslurými er 250 MB. Þeir gera einnig út á afritun gagna og er réttast að kynna sér kostina sem eru í boði. DropSend er einnig með sjálfstætt forrit sem má nota til sendinga ef maður kýs það frekar en að nota vefforrit.

SendUit er afar einfalt og ekkert annað í boði en sendingar skjala upp að 100 MB. Engin aukaforrit eða stærri samningar. En ókeypis.

Nethal er eina íslenska þjónustan af þessu tagi sem ég veit um. Að mörgu leyti er þjónustan hjá þeim sú aðgengilegasta. Ókeypis að 100 MB og þá þar ekki að skrá sig. Skrái maður sig (einfalt) má maður senda allt að 500 MB. Gegn 1.990 kr. ársgjaldi sem fer allt í hjálparstarf getur maður sent skjöl allt að 1 GB.
Viðbætur:

Sendspace (ábending frá Darra) er með mjög rúm kjör. Engar takmarkanir á fjölda skjala eða hve oft hverju skjali er halað niður. Skjöl allt að 300 MB í hverri sendingu.

Dropbox er af aðeins öðrum toga en mér finnst rétt að hafa það með hérna finnst bent var á það. Þessi flokkur er eiginlega efni í aðra grein. Dropbox virkar þannig að, segjum eins og í mínu tilfelli: Ein tölva í vinnunni og svo fartölva sem fylgir mér hvert sem er. Dropbox er mappa á báðum tölvum og það sem ég set í þessar möppur birtist báðum tölvum. Það tekur ekki langan tíma að uppfærast á milli þótt skjölin séu nokkuð stór. Eins get ég óhindrað unnið í skjölin meðan þau eru í Dropbox, því mappan er á tölvunni en ekki á netþjóni. Skjölin uppfærast svo á hinni tölvunni. Þá hefur maður einnig aðgang að sama efni á netinu í gegnum vefforrit, Safari eða sambærilegt.
Það sem þetta á sameiginlegt með þjónustunni hér að ofan er að maður getur veitt óskyldum aðila aðgang að hluta efnisins í Dropbox. Þannig er opinn möguleiki fyrir samskipti með skjöl með viðskiptavini. Þeir sem eru með áskrift að mac.com / me.com kannast við svipaða virkni með iDisk.
Endilega látið vita ef þið lumið á meiri upplýsingum af þessu tagi.


Ein önnur (útlensk) þjónusta sem er sniðug er DropBox (http://getdropbox.com/) hún er reyndar frábrugðin þessum sem þú minnist á hér en gerir sama gagn. Þá ertu bara með möppu á tölvunni sem syncast sjálfkrafa við serverana þeirra og svo geturðu verið með þessa syncuðu möppu á fleiri tölvum og haft sama innihald í þeim öllum. Einnig er hægt að fá public link á dót í Dropbox möppunni sem hægt er svo að senda á fólk í tölvupóst. Ókeypis reikningurinn gefur manni 1gb en fyrir held ég 10 dollara á mánuði eru það 50 gíg.
Mæli allavega með því að kíkja á þetta.