Bókarkápa í SuperPaint

Þegar ég eignaðist mína fyrstu tölvu, Mac­in­tosh Plus, í árslok 1986 varð ég fljótlega fyrir lét­tum von­brigðum með útkomu teikninga út úr þeim for­ri­tum sem boðið var upp á. Það var reyn­dar bara hægt að velja um Mac­Paint og Mac­Draw á þeim tíma. Fljótlega eignaðist ég þó Super­Paint og þótti mikil fram­för. Samt sem áður van­taði alger­lega þes­sar mjúku sveigðu línur sem maður gat gert seinna í vectorforritum.

Fyrst í stað átti ég ekki laser prentara og ef maður vildi fá eit­th­vað annað en útprent úr ImageWriter nálaprentara þurfti maður að fara út í Reiknistofu Háskólans til þess að prenta út. Þes­sar höm­lur reyndi maður að yfirstíga af frem­sta megni og ég gerði tilrau­nir með Super­Paint, prenta út úr for­rit­inu og vinna svo með áfram í þeim tækjum sem maður notaði í þá daga. Ég komst fljótlega að því að að best væri bara að láta pix­elin njóta sín í því sem maður var að gera.

POR Flyskraek

Eitt af þeim verkefnum sem ég nýtti Super­Paint í var bókarkápa sem ég gerði fyrir Mál og men­ningu. Fly­skræk, kennslubók í dön­sku. Myn­din, sem er hér að hluta, er teiknuð með klun­nalegu músinni sem fyl­gdi tölvunni. Þegar ég var búinn að teikna myn­d­ina fór ég út í Reiknistof­nun og prentaði út. Repromyn­davélin var notuð til þess að koma teikningunni yfir á glæru og aftan á glæruna málaði ég myn­d­ina með þekjuli­tum. Ein­nig kóper­aði ég snifsi úr dön­sku dag­blaði og setti inn í pap­pírsskut­luna. Eftirvinnslan fór svo fram í prentsmiðju. Það hefði verið munur að hafa Pho­to­shop til þess að gera allt þetta en eftir lifir að ég held alltaf svolítið upp á þessa teikningu og pix­elin í henni.

  • Share/Bookmark