Smasher

Lino­type Explorer X færist óðum nær lokaút­gáfu í gær kom út Final Can­di­date 3. Flest það sem ég hef komist í að lesa um for­ri­tið er afar jákvætt en samt eru, eins og gen­gur með forút­gá­fur, smá­gal­lar sem reynt er að hreinsa út á leiðinni að lokaútgáfu.

Eitt sem Explorer gerir ekki við letur en lætur mann þó vita af því ef eit­th­vað er að. Þessi eigin­leiki, að gera við letur er í for­ritunum Suit­case og FontA­gent Pro en Lino­type mun ekki setja hann í Explorer X. Þeir bera við höfun­dar­rét­tar­málum; seg­jast ekki mega breyta letrinu. Þeir hafa sjálf­sagt tölu­vert til síns máls enda eru höfun­dar­rét­tar­mál ær og kýr leturútgefenda.

Letur­fjöldi einn og sér í tölvum er út af fyrir sig ánauð fyrir stýrik­erfi tölva og þess vegna eru for­rit eins og Explorer X, Suit­case og FontA­gent Pro búin til okkur til hægða­rauka. Við þetta bætist að ef gal­lar eru í letri eða skem­mdir er stórhætta á fer­ðum og getur oft á tíðum erfitt að rekja vil­lur til letursins og fyl­gi­fiska þess eins og skyn­dimin­nis­sk­jala (font cache). Það er því nauðsyn fyrir alla sem höndla mikið með letur að hafa við hen­d­ina for­rit sem geta sig­tað út letur sem er skemmt og gert við það. Nýlega kom út lítið hjál­par­for­rit á þes­sum vettvangi Smasher.

SMAsmashericon Smasher er fram­leitt af Insid­er­Soft­ware, þeim sömu og gera FontA­gent Pro. Þarna eru því engir aukvisar á ferð. Það sem Smasher gerir helst fyrir mann er að hreinsa út font cache skjöl úr tölvunni, líkt og Font­Fi­na­gler gerir. Smasher gen­gur þó enn lengra en Font­Fi­na­gler og hrein­sar út skyn­dimin­nis­skjöl tengd ákveðnum for­ri­tum sem ég hef fjal­lað um hér áður, Office, Adobe og Quark.

Smasher gerir ein­nig við leturtöskur gam­lar og nýjar og getur skipt þeim upp þan­nig að í stað leturtösku með öllu skjáletrinu, deilist það niður í stakar leturtöskur með einu skjáletri hvert. Þetta getur læk­nað sumt gamalt letur sem ekki vill sýna sig annars. Þekkt van­damál. Ýmis­legt annað er ótalið hér og best að lesa nánar um þetta hjá insidersoftware.com/SM_smash.php .

Það er þó eitt sem gerði það að verkum að ég keypti það eftir aðeins 10 mínútna prufu. For­ri­tið er frábært til þess að skoða letur sem ekki er virkt í tölvunni. Það eru all mörg for­rit sem bein­lí­nis eru ætluð til þess að skoða letur en lang flest bjóða aðeins upp á að skoða letur sem hefur verið gert virkt á tölvunni. Ég er búinn að leita lengi að for­riti sem þægi­legt er að skoða letur úr letur­safni þar sem það er statt á tölvunni, án þess að virkja það. Á stýrik­erfi 9 notaði maður Font­Gan­der en það hefur alltaf van­tað almen­ni­legt for­rit á tíunni sem býður upp á svipaða möguleika. Smasher er það besta sem ég hef fundið enn. Boðið er upp á sýni­sein­tak með tak­markaðri virkni en forskoðu­narhlutinn er í góðu lagi.

  • Share/Bookmark