Frá Tígur í Hlébarða — MacOS X 10.5

Tveir sætir!
Það var alveg sérdeilis vel til fundið hjá Apple að leyfa sölu á Leopard (frb.: leppard) strax að ræðu Steve Jobs lokinni. Líklega hefðu mátt vera til sölu fleiri diskar miðað við myndina sem birtist í Mogganum daginn eftir.
Ég fékk minn disk í hendurnar um hádegið á laugardaginn og smellti kerfinu í fartölvuna mína. Ég tók afrit af meginsvæðunum kvöldið áður og er ekki ofbrýnt fyrir fólki að taka reglulega afrit af tölvunum sínum. Verð á aukadiskum er alltaf að verða betra og betra og með þessu nýja stýrikerfi ætti regluleg afritun að verða leikur einn. Munið bara þegar þið eruð búin að tengja diskinn við í fyrsta skipti að fara í Disk Utility, velja diskinn og smella á Erase. Margir diskar svo sem þessir flottu Porche LaCie diskar eru nefnilega forsniðnir fyrir PC og það kemur í hausinn á manni fyrr eða síðar ef þetta er ekki gert.
Það væri að æra óstöðugan að fara í gegnum allt sem Leopard býður upp á fram yfir Tiger. Kerfið er í stuttu máli meiri háttar skemmtilegt og nýir möguleikar eins og Spaces finnast mér æðislegir. Sama má segja um ýmis forrit sem Apple uppfærði í leiðinni eins og t.d. Mail — það er orðið miklu betra.
Samt er ekki hægt að horfa fram hjá því að ýmislegt smá vesen fylgir með. Sumt af því er af því að aðrir forritaframleiðendur eru ekki búnir að aðlaga forritin sín að fullu og einhverjir hnökrar eru líka í Leopard sjálfum. Ég er enn að vinna í sumu af þessu og er að reyna að sjá hvar Leopard á sökina og hvar eitthvað annað forrit eða þá þau saman. En mér finnst þetta vesen ekkert sérstaklega leiðinlegt ef ég á að segja eins og er.
Þrátt fyrir þetta er kerfið vel starfhæft og gott betur og er ég síst að reyna að fæla nokkurn frá því að smella sér í dansinn.
Eitt af því fyrsta sem ég sá eftir að ég uppfærði var að Leopard var búinn að henda út öllum prenturum. Sennilega er þetta með vilja gert því mér skilst að þetta gerist sama hvaða aðferð er notuð vð innsetninguna. Fyrir flesta er þetta minnsta mál, einn prentari settur inn aftur og búið mál.
Fyrir mig verður þetta að stórmáli. 30 tölvur sem hver og ein er með tengd við þrjá ólíka prentara og það sem er verst er að Leopard hendir líka út PDF reklunum (drivers) frá Adobe, sem forrit svo sem InDesign og fleiri styðjast mikið við. Fjórum sinnum þrjátíu eru hundrað og tuttugu! Þá er bara að finna einhverja flýtileið.
En hvernig á að koma þessu í lag aftur? Ég geri ráð fyrir að þeir sem lenda í þessu séu með annað hvort Acrobat 7 eða 8 á tölvunum sínum.
- Fyrst er farið í System Preferences og þar í Print & Fax.
- Smellt á + táknið eins og til að bæta við prentara.
- Skrifaðu Adobe í leitarreitinn uppi til hægri ef Adobe kemur ekki fram fljótlega.
- Þegar Adobe PDF 8.0 er komið inn í listann er sú lína valin og nafnið birtist í Name: reitinn.
- Print Using: hnappurinn neðsti: styðja á hann og velja: Select a Driver to use…
- Nú birtist annar leitarreitur og í hann skrifar maður: Adobe.
- Við þetta ætti rekillinn að birtast Adobe PDF 3016.102, hann er valinn og þá ætti þetta að vera komið.

