Free­Hand nál­gast endalokin

FreeHandLogoAdobe gaf út fyrir stuttu frét­tatilkyn­ningu um það sem Free­Hand noten­dur hafa óttast mest: Free­Hand verður ekki uppfært fra­mar.

Ég fékk í hen­durnar pdf skrá frá Adobe um þetta en ég veit ekki um slóð á það hjá þeim. Finna má skjalið með því að slá upp:

FreeHand_to_Illustrator_Migration_FAQ.pdf í Google.

Saman­tekið og lauslega þýtt er inni­haldið eit­th­vað á þessa leið:

Spurn­ing: Hvað hyg­gst Adobe gera varðandi framtíðarþróun Macro­me­dia© FreeHand©?

Svar: Adobe ætlar ekki að þróa Free­Hand frekar og ekki munu koma út uppfærslur fyrir for­ri­tið. Adobe mun hins vegar selja Free­Hand MX áfram og veita tækni­le­gan stuðn­ing og halda uppi noten­daþjónustu í sam­ræmi við stefnu fyrirtæk­isins. Við vitum vel af stórum hópi tryg­gra notenda en hvetjum þá til þess að skipta yfir í Adobe© Illus­tra­tor© CS3. Sem tryg­gum Free­hand noten­dum bjóðast ykkur sérstök kjör á uppfærslu yfir í Illus­tra­tor CS3 ásamt ókeypis aðgangi að ýmis konar stuðn­ingsefni sem á að hjálpa ykkur við að taka þetta stökk.

Í skjal­inu eru nokkrar slóðir sem vísa á síður þar sem ýmist eru gefin góð ráð við skiptin eða farið yfir kostina við að skipta. Eins má finna ágætis efni þar sem bent er á hvernig þekk­tar aðgerðir úr Free­Hand eru gerðar í Illustrator.

Það stefnir allt í að Free­Hand noten­dur séu að lokast inni með for­ri­tið í Tiger gerð af stýrik­erfinu og alveg spurn­ing hvað Humac sér lengi þörf fyrir að uppfæra Klem­mus­p­jalds­breytinnn og Roman hnap­paboðið, sem eru fors­enda þess að hægt sé að setja texta inn í FreeHand.

Eitt af því sem Free­Hand noten­dur sakna hvað mest er að geta unnið með mar­gar og mis­stórar síður í for­ritunu. Illus­tra­tor býður ekki upp á það á sama hátt. Í fles­tum til­fel­lum væri mun nær að hugsa sér að nota InDe­sign þegar nota þarf mar­gar síður, til dæmis við bæk­lin­gagerð. Enda yfir­burða letur­möguleikar í því forriti.

Hér er slóðið á nokkra staði sem fjalla um þessi mál:

Skipt yfir í Illus­tra­tor, mar­gar síður

Skipt yfir í Illus­tra­tor, ýmsar upplýsadi staðreyn­dir fyrir Free­Hand fólk

Skipt yfir í Illus­tra­tor, ýmsar upplýsingar

Ég hvet Free­Hand noten­dur til þess að kíkja á þes­sar síður og eins á pdf skjalið sem ég benti á hér að ofan.

  • Share/Bookmark