Archived entries for

Stór viðhengi

paperplane

Allir þurfa ein­hvern tíma að senda stór skjöl til ein­hvers annars yfir netið.

Con­tinue reading…

Leikið með letur

leturhestur

Flott meðferð á letri er út um allt á net­inu. Málið er bara að finna það.

Það kostar mikla yfir­legu að finna góða staði og oft er kannski bara um að ræða einn hlut af mör­gum á síðu sem er góður.

Þess vegna er alltaf fen­gur í því þegar ein­hver tekur saman yfir­lit yfir það sem hann hefur rek­ist á og sýnir á sínum vef ásamt tenglum að verk­inu. Hérna er skemmti­leg saman­tekt á ýmsu sem hefur birst nýlega. Þó nokkuð af þessu er sótt á devianart.com þar sem mar­gir nota til að koma sér á framfæri.

Hvaða letur ert þú?

whatfont

Ef ekki væri öll þessi sósíal medía veit ég ekki hvað ættum að gera af okkur. Face­book, Twit­ter og allt það dót. Alltaf verið að benda manni á eit­th­vað sniðugt sem maður getur eytt tímanum í.

Hérna er eitt af þes­sum per­sónuleikapró­fum sem mér finnst nát­túrulega alveg sjálf­sagt að allir taki: What font are you?

Hafa ber í huga að maður á bara að svara því sem lík­ist helst því svari sem maður vill gefa. Svona stemmnings–svar.

Ég veit ekki af hverju sten­dur Hel­vetica efst yfir prófinu (vonandi fá ekki allir sama svar) en ég endaði með því að fá það svar að ég væri Hel­vetica. „You’re like and indus­try stan­dard. Clas­sic. Reli­able. Okay, maybe a bit bor­ing. But you don’t let the haters get you down–after all, you’ve still got plenty of friends who think you’re the best“. Jæja, þá vitum við það!

Font­Ex­plorer X Pro

fexpro2

Font­Ex­plorer X Pro leturstjórnar­for­ri­tið er komið út.

Slæmu frét­tirnar eru að for­ri­tið er ekki lengur ókeypis. Það er á tilboði á 39 evrur út febrúar en hækkar þá í einar 79 evrur. Hægt er að prófa það í 30 daga áður en keypt er. Ég mæli með að ef ein­hver sem er með eldri útgá­funa taki afrit af letur­safn­inu í User/FontExplorerX, því það er aðla­gað að nýju útgá­funni. Ef síðan er hætt við kaupin er vis­sara að hafa gamla safnið við hendina.

Con­tinue reading…

2009 : Gleði­legt nýtt ár

futurista2009

Ég óska öllum gleði­legs nýs árs og farsæl­dar. Takk fyrir allt gamalt og gott.



Get Adobe Flash playerPlugin by wpburn.com wordpress themes

Copyright © 2004–2009. All rights reserved.

RSS Feed. This blog is proudly powered by Wordpress and uses Modern Clix, a theme by Rodrigo Galindez.