Gleðileg jól

Ég óska öllum þeim sem hafa litið við hér á font.is, gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.
Það er nokkuð ljóst að næsta ár verður mörgum þungt í skauti. En þegar maður hugsar til þessara mála sem skollin eru á okkur, er þá bara ekki ágætt eftir allt að fara í gegnum þessa hreinsun? Nú getum við farið að huga að þeim gildum sem hafa gert okkur að þeirri þjóð sem við erum, gildum sem hafa viljað gleymast í dansinum í kringum gullkálfinn.
Sameinumst um að láta byrðarnar ekki sliga félaga okkar og vini og horfum fram á veginn.
Ef ég má gerast svo lítillátur að gefa einhver ráð fyrir næsta ár er það stutt og einfalt: Læra. Með því að bæta við kunnáttu sína standa menn betur að vígi í vegferðinni sem framundan er og heildin verður jafnframt því sterkari ef liðsmenn eru stöndugri.
Gleðileg jól. Heyrumst á næsta ári.







