Ég er oft spurður að því hvernig á að dreifa eða fjölfalda hlutum jafnt í hring. Svarið er tiltölulega einfalt en greinilegt að það liggur ekki í augum uppi svo við skulum kíkja aðeins á þetta mál.
Eins og sést á myndinni er þetta tiltölulega einfalt form en þótt blettirnir séu ekki nema sjö getur tekið talsverðan tíma að dreifa þessu jafnt með handafli. Auðvitað geta þetta verið alls konar önnur form, myndir, stjörnur eða eitthvað annað.
Hefst þá lýsingin:
Fyrst teiknum við formið sem á að fjölfalda svona í hring. Kveikjum á Rules, með slaufa + R.
Drögum því næst leiðarlínur út úr reglustikunni frá vinstri inn í mitt formið. Drögum svo aðra leiðarlínu frá efri reglustikunni þvert á hina á þann stað sem hlutirnir eiga að snúast um.
Continue reading…