Nú er ég lentur í sumarfríi. Og enn eina ferðina er það Ítalía. Líklega er þetta í níunda skipti sem við förum til Ítalíu. Ég ætla að skrá ferðina niður eftir því sem tími gefst til en það hefur oftast reynst þrautin þyngri. Oftast er ekki mikill tími aflögu til skrifta og internetsambandið getur verið svona og svona.
Ferðin hófst með flugi frá Keflavík til Mílanó. Einn kosturinn við þessa flugferð var sá að flugið var ekki fyrr en klukkan 10 að morgni. Þá þurfti maður ekki að fara á fætur um miðja nótt til þess að koma í tæka tíð á flugvöllinn. Reyndar eru ferðalög með flugvélum í seinni tíð farin að taka allt of langan tíma þrátt fyrir flýtiinnskráningar á flugvöllunum. Continue reading…