TypeCon 2008
TypeCon 2008 leturráðstefnan verður haldin í Buffalo, NY dagana 15. til 20. júlí næstkomandi á Hyatt Regency hótelinu þar í borg.
TypeCon 2008 leturráðstefnan verður haldin í Buffalo, NY dagana 15. til 20. júlí næstkomandi á Hyatt Regency hótelinu þar í borg.
Flestir kannast við hugtakið Drag’n’Drop eða Drag’og detta… eða hvað á að kalla það á íslensku. Þá er gjarnan átt við að einhver hlutur í tölvunni er dreginn yfir á annan stað og málið búið. Eins og til dæmis að draga forrit inn í Applications og þá er forritið tilbúið til notkunar.
Þeir sem eru forvitnir, að ég tali ekki um þá sem eru forvitnir um letur (nefni engin nöfn), ættu að kíkja á þráð á Typophile Your latest design. Þar veita margir þekktir leturhönnuðir innsýn inn í þau letur sem þeir eru að vinna að núna og eru ekki væntanleg fyrr en seinna á þessu ári eða jafnvel ekki fyrir enn á því næsta.
Margt mjög flott sem hægt er að byrja strax að slefa yfir!
Nafnið á þessari bók er dálítið villandi. Designing Type eftir Karen Cheng er ekki beint kennslubók í því hvernig á að hanna letur. Frekar ætti að líta á hana sem stúdíu á letri – samanburður á þekktum letrum.
Engu að síður er bókin flott og skemmtileg (afar afsætt hugtak). Fullt síðum af stórum svörtum stöfum og þeir mældir fram og til baka, kverkar og horn skoðuð. Þannig er bókin afar fróðleg ef menn hafa á annað borð gaman að skoða letur.
Ég er búinn að vera með þessa bók nálægt mér í meira en ár og ef einhver hefur áhuga á henni ætti sá sami að fara að huga að því að nálgast hana því það er víst ekki mikið eftir. Ég fékk mína í bókabúð Máls og menningar eða í Bókabúð Steinars í Bergstaðastræti en hef ekki séð þær lengi þar. Amazon.com er líklega vænsti kosturinn.
Eins og fastir lesendur hafa orðið varir við hef ég verið að breyta útliti font.is síðustu daga. Grunnbreytingin er komin á en hitt og þetta mun breytast um leið og nýtt efni skolast inn.
Nýlega voru birt úrslit í þessari keppni. Lítið um það að segja — betra er að skoða.
Ágætis stökkpallur inn í vefinn um þetta er hér . Þaðan er hægt að fara inn á 2008 eða 2007.
Margt flott þarna en í fljótu bragði hreifst ég einna mest af Rússnesku útgáfunni hinum Guðdómlega gamanleik Dante.

Á netinu er meira af ljósmyndum en maður kæmist yfir að skoða á heilli ævi. Continue reading…
Copyright © 2004–2009. All rights reserved.
RSS Feed. This blog is proudly powered by Wordpress and uses Modern Clix, a theme by Rodrigo Galindez.