Útspýtihnappurinn, Eject er notaður til þess að spýta út CD eða DVD diskum eins og allir vita.

En það er meira sem hann getur gert með aðstoð annarra hnappa. Ég hef minnst á það áður hérna að með því að bæta við stjórnhnappnum, það er, stjórn + Eject, getur maður fengið upp skilti sem býður manni að endurræsa tölvuna, svæfa hana eða slökkva á henni. Svo er um að gera að nota þá dálkhnappinn, Tab til að flakka á milli hnappanna og samþykkja svo með því að slá á bilstöngina, Spacebar.


Ef þetta þykir þægilegt væri ekki úr vegi að minnast á eina skipun í viðbót sem ég rakst á nýlega. Hentugt eða ekki, en þessi skipun, stjórn + skipti + Eject (Control + Shift + Eject) slekkur á skjánum tímabundið, eða þar til ýtt er á einhvern hnapp eða músin hreyfð.
Hugsanlega nýtilegt ef einhver kemur óvænt að manni þegar maður er í heimabankanum eða eitthvað í þá áttina.
