Black Slabbath
Stefán Kjartansson er tvímælalaust í hópi athyglisverðari íslenskra hönnuða.
Það er óhætt að segja að letur er eins og rauður þráður í flestri hönnun Stefáns. Hann hefur þar að auki gefið út nokkur letur á síðustu árum. Þessi letur hafa vakið athygli enda passað ágætlega við tíðarandann hverju sinni. Hvað sem segja má til dæmis um Gor, þá átti það vel við þegar það kom út. Sama má segja um Reykjavik; það er kannski ekki alveg gallalaust en hefur alveg staðist tímans tönn.
Nýleg letur frá Stefáni eru til dæmis Armchair Modern sem nýlega var valið eitt af tíu bestu letrum 2007 hjá FontShop .
Um daginn bætti hann svo við einni fjöðrinni við í hattinn, Black Slabbath. Skemmtilegt feitt slab serif letur í tveimur tilbrigðum. Þeir sem vilja kynna sér betur verk Stefáns ættu að kíkja á síðuna hans eða þessa.



