
Maður þorir varla að segja það upphátt, en haustið er að skella á. Skólar að byrja, fólk streymir úr sumarleyfunum, haustlægðirnar eru að fara að beygja upp að landinu. Allt að verða eðlilegt aftur — eða þannig.
Það er ýmislegt sem hægt er að gera til þess að falla ekki í tómt þunglyndi. Til dæmis væri upplagt að kíkja á haustlitina sem Pantone fyrirtækið spáir að verði ríkjandi í hausttískunni. Reyndar er það svo að það þarf enga spámenn í þetta. Allt saman löngu ákveðið í samráði við tískufrömuði.
Annað sem ég mæli sérstaklega með er að kíkja í kringum sig og skoða hvort eru ekki einhver endur– eða símenntunarnámskeið sem hægt er að snara sér á. Hafa verður í huga að það er ekki bara hagstætt fyrir atvinnurekandann að maður sé betur að sér í því sem maður fæst við, heldur er ekki síðra fyrir sálartetrið í manni sjálfum að bæta við sig og reyna aðeins á sellurnar.

Ég kenndi á námskeiði í fyrra. Margir hafa nefnt við mig að þeir hafi ekki vitað af námskeiðinu og voru spældir að hafa ekki komið á það. Í því tilfelli var námskeiðið á vegum Prenttæknistofnunar en þrátt fyrir að þeir sendi reglulega út pósta um námskeiðin er greinilegt að margir missa af skilaboðunum.
Best er að byrja á því að skoða hvaða námskeið eru í boði og finna svo út hvernig er hægt að komast á póstlista. Sumir þyrftu jafnvel að athuga hvort þeir eigi ekki einhverja ólesna pósta frá Prenttæknistofnun.
Sérstaklega eru spennandi námskeið með Sandee Cohen og Ben Wilmore en einnig námskeið í Flash með Illustrator og Acrobat námskeið. Ekki má heldur gleyma InDesign og Illustrator námskeiðunum hans Harra.
Það eru líka fullt af öðrum aðilum með námskeið um aðskiljanlega hluti, ekki endilega tengdum grafíska geiranum. Endurnenntun Háskóla Íslands, símennt Háskóla Reykjavíkur, tölvuskólar og hvað eina. Það getur engu að síður verið upplyfting í því. Bara hafa augun opin.