Archived entries for

2007 Ítalía : Lecce, San Cal­taldo og Cibal

sancataldo

Dagurinn fór rólega af stað. Sumar­frí eru oft eigin­lega tímalaus en ég veit þó að það er lau­gardagur. Við ákváðum enn að sleppa morgun­mat­num á hótelinu og koma okkur út á strönd. Það er alveg gráup­plagt, Con­tinue reading…

2007 Ítalía : Alber­o­bello og trulli

Þetta er í fyrsta skipti síðan ég man ekki hvað, að við hjónin förum saman án krakkanna í sumar­frí. Við höfum ákveðið að slappa verulega af í þessu fríi. Sem við höfum reyn­dar alltaf gert. Það þýðir þó ekki að við ætlum að hanga endalaust á strönd eða eit­th­vað því um líkt. Afs­löp­pun er líka skil­greiningara­triði — við gerum það sem okkur sýnist og þur­fum ekki að hugsa um neina aðra. Það er eigin­lega það sem ég er að meina. Con­tinue reading…

2007 Ítalía : Lecce, borðað a la mama.

Við svá­fum af okkur morgun­mat hótelsins. Það er reyn­dar oftast ekki eftir miklu að slæg­jast í þeim efnum hvort eð er. Eftir að við vorum komin á lap­pir brugðum við okkur á strönd hérna 12 km. aus­tan við Lecce. San Cataldo er lítill strand­bær sem snýst að því er virðist eingöngu um þessa strönd. Fer­ða­man­nas­trau­murinn er lík­lega ekki eins mikill og víða annars staðar á Ítalíu eða þá að hann er ekki byr­jaður fyrir alvöru. Það er í það minnsta nóg pláss á ströndinni og við deilum þes­sum hluta hen­nar með svona tíu öðrum — Ítölum. Con­tinue reading…

2007 Ítalía : Lecce

Þegar við lentum í Róm fórum við á hótel Ibis sem er í svona 15 km fjar­lægð frá flugvel­linum. Flugvélin lenti það seint um kvöldið að við ákváðum að stal­dra þarna við um nót­tina. Ibis var ágætis kos­tur þótt þetta séu nú ekkert sér­lega skemmti­leg hótel nema til þessa brúks. Rúmin mættu vera aðeins mýkri en her­ber­gin eru mjög hrein og rúmgóð. Con­tinue reading…

2007 Ítalía : Land eitt er langt og mjótt …

Nú hendi ég mér í sumar­frí í þrjár vikur. Meg­nið af tímanum verð ég og konan mín á þes­sum slóðum sem dreg­nar eru upp á þetta kort.

Um það bil sem þessi pis­till fer í loftið ætti ég að vera að lenda í Róm. Leg­gjum svo af stað suð–austur á bóginn til Lecce. Í fyrsta skammti Con­tinue reading…

ID : Orðskipt­ing án skiptiforrits

Á Maclantic.com var vísað hin­gað í tengslum við orðskip­tiviðbótina InDi­hyph fyrir Adobe CS3 pakkann. Það er búið að svara að hluta til því sem var verið að spyrja um, en það má sem sagt búast við að klárað verði við að uppfæra viðbótina á næstu örfáum vikum. Ekki vit­laust að setja sig á frét­tabréf­s­lis­tann hjá þeim. Con­tinue reading…

Apple : Á slóðum RSS

RSSlogo
Mar­gir eyða óheyri­legum tíma á net­inu. Ég er þar lík­lega engin undan­tekn­ing en fer þó eftir því hvernig maður skil­greinir óheyri­legt. Aðrir eyða ekki minni tíma í að horfa á sjón­varp og margt af því ekkert sér­lega upp­byg­g­jandi. Raun­veruleikaþæt­tir eða íþrót­tir og ýmis konar afþrey­ing. Ég get alveg verið án þess hát­tar sjón­varpsef­nis — Con­tinue reading…

Mail : Kalkipap­pír, cc og bcc

TYPistFyrr á árum var notaður kalkipap­pír milli tveg­gja blaða í ritvél til þess að búa til afrit af aðal­blaðinu. Svona afrit heitir Car­bon Copy og af því er dregið þetta cc sem fólk notar mikið í tölvupósti. Afrit af tölvupóstinum til ein­hvers annars en þess sem fær aðalpóstinn. Con­tinue reading…

Hel­vetica 50 ára

Helvetica

Kannski ég labbi út á vídeóleigu ein­hvern tíma næstu mis­serin og leigi mér myn­d­ina Hel­vetica á DVD. Þetta gæti verið alveg hugsan­legt, ef vídeóleigan keypti inn myn­d­ina — sem er hins vegar frekar ólík­legt. Con­tinue reading…

Þankas­trik, band­strik og skiptistrik

Typekeys

Ritvélar voru hið mesta þar­faþing og ein­hver­jir nota þær jafn­vel enn við skriftir. Þó hygg ég að fle­stir sem stunda þan­nig vinnu eða tóm­stundir hafi skipt yfir í tölvur fyrir margt löngu. Con­tinue reading…



Get Adobe Flash playerPlugin by wpburn.com wordpress themes

Copyright © 2004–2009. All rights reserved.

RSS Feed. This blog is proudly powered by Wordpress and uses Modern Clix, a theme by Rodrigo Galindez.