Archived entries for

Og táknið – Ampersand

Ampersand1& táknið, sten­dur fyrir orðið „og“ en er styt­ting á lat­neska orðinu „et“ sem þýðir það sama – og.

Táknið á sér ýmsar fjöl­breyti­le­gar myn­dir í letri. Elstu heim­ildir um notkun á tákn­inu er að finna í rómver­sku han­driti frá því um 75 eftir Krist. Langþekk­tas­tar eru & myn­dir af því, en nokkrar aðrar grun­nút­gá­fur eru til. Lík­jast sumar oft öfugum þre­mur eða öllu hel­dur E og oft má sjá móta fyrir bæði e og t í þes­sum táknum. Con­tinue reading…

Open Type 2

Ég hef áður skri­fað hérna pis­til um Open­Type og þess vegna er þessi númer 2. Sit­th­vað er nát­túrulega endurtekn­ing á því sem ég sagði á sínum tíma. Síðar áttaði ég mig á því þegar ég hélt fyrir­lestur í Bláa sal­num hjá Mog­ganum, að þótt mar­gir væru jafn­vel búnir að lesa grein­ina höfðu þeir ekki gert neitt í að prófa hvernig þetta virkaði en vildu fá meira að heyra. Þess vegna er upplagt að taka upp þráðinn að nýju og bæta við smá sýnikennslu. Con­tinue reading…

AI : ID : Textabox

AITabStika

Ég ætla nú bara að fjalla lítil­lega um einn þátt tex­takassa í Illus­tra­tor – og aðeins í InDe­sign sem ég hef heyrt fólk vera að pirra sig svolítið á. Con­tinue reading…

Litablön­dun með Kuler

KulerÉg skri­faði nýlega um skemmti­leg tól til litablön­dunar. Nú hefur bæst nýtt tól í þen­nan flokk frá ekki minni aðila en Adobe. Þeir kalla þetta Kuler sem er ein­hvers konar orðaleikur með Cool og Colour.

Það er greini­legt að þeir hafa kíkt ein­hvern tíma á colorblender.com en þeir hjá Adobe taka hugmyn­d­ina aðeins lengra og ætla sér að vera með all­sh­er­jar litaspekúlasjónir þarna undir.

Endi­lega kíkja á Kuler. Það þarf að vera með nýjustu útgáfu af Adobe Flash Player skoðara til þess að kíkja á þetta en maður er lei­d­dur í geg­num allt það ferli ef með þarf.

Fjaðrir í hat­tinn : Akismet og Mod­er­ate Brief Com­ments fil­terar fyrir WordPress

Þessi pis­till er meira eða minna fyrir mig sjál­fan til þess að geyma dagset­ninguma sem ég setti svokallaða spam vörn á þen­nan vef : 14.11.2006. Þar höfum við það.

Þeir sem stunda að senda spam beita öllum tiltækum ráðum við að koma því til fólks. Senda tölvupósta, vírusa sem senda pósta frá sak­lausum (pc)-notendum og hvað eina. Con­tinue reading…

Apple : Fín leið til þess að þysja — zoom

UniversalAccLogoÞað eru bísna mar­gir sem fara helst ekki inn ker­fis­still­ingar­nar, Sys­tem Pref­er­ences – nema kannski til þess að breyta skjáborðs­myn­dum hjá sér. Þarna komast forvit­nir í feitt. Eitt af þeim atriðum sem boðið er upp á að gramsa í er Uni­ver­sal Access.

Þegar litið er inn í Uni­ver­sal Access sést að þarna er boðið upp á ýmis hjál­partæki sem mörg hver eru hug­suð fyrir þá sem eru með fötlun af ein­hverju tagi, t.d. sjón– og heyrnarskerðingu eða hrey­fi­höm­lun. Sumar af þes­sum still­ingum eru á þegar nýtt kerfi er sett á tölvuna til dæmis eigin­leiki tölvun­nar til þess að lesa texta og eins þysjun eða súmm. Con­tinue reading…

Apple : Under­cover – ekki fyrir Bjarnarbófa

Er hægt að mæla með for­riti sem maður vonar að aldrei þurfi að nota? Reyn­dar. Það eru til for­rit sem eru eins og tryg­gin­gar – maður kaupir sér tryg­gingu og vonar að maður þurfi aldrei að nýta sér þær.

ORBUndercoverUnder­cover for­ri­tið frá Orbicule er ein­mitt svona. Maður setur það á fartölvuna og vonar að maður þurfi ekki virkja það og að tölvunni verði aldrei stolið.

Con­tinue reading…

ID : Flýtiskipanir fyrir stílsnið

Mar­gir sem hafa mikla reynslu af umbroti í Quark en vinna núna meira eða eingöngu á InDe­sign sakna þess að hafa ekki aðgang að f-hnöppunum til þess að hengja stíl­sniðin (Para­graph Styles) á. Það er ekki alveg klárt afhverju Adobe ley­fir ekki að þes­sir hnap­par séu notaðir í InDe­sign nema með öðrum aukah­nöp­pum. Con­tinue reading…

ID : Text Exporter

Flest allir sem vinna við umbrot lenda fyrr eða síðar í því að viðskip­tavin­urinn þarf að fá loka­tex­tann út úr verk­inu aftur. Sá texti er nát­túrulega sá sem er mest unninn, úthugsaður og pró­farkalesinn. Í mar­gra blaðsíðna verki er það enginn skemmtigjörningur að taka saman tex­tann og púsla saman til sendin­gar. Con­tinue reading…



Get Adobe Flash playerPlugin by wpburn.com wordpress themes

Copyright © 2004–2009. All rights reserved.

RSS Feed. This blog is proudly powered by Wordpress and uses Modern Clix, a theme by Rodrigo Galindez.