Argentína 2006 : Lokadagur
Nú er komið að lokadeginum. Farið í flugið um áttaleytið í kvöld. Þannig að kvöldmaturinn verður allt að því óætur flugvélamatur hjá American Airlines. Beef or chicken? Ég er ennþá að spá í hvorn réttinn ég álpist á.
Við Linda tókum leigubíl þvert yfir miðbæinn og gengum um hverfið San Telmo. Við hefðum reyndar átt að gera það á laugardegi því þá er líf og fjör þar, dansað á torgum og allt vitlaust. Það var samt alveg nóg af fólki en minna um dans. Ég er svo sem búinn að sjá nægju mína af tangó í bili. Continue reading…

