Archived entries for

ID : Aldrei of nákvæmt!

InDesignÞeir sem hafa undir hön­dum Intel Mac­in­tosh vélar og InDe­sign þar á, hafa eflaust tekið eftir því hversu nákvæ­mar mælieiningar­nar eru. Aðeins of nákvæmar…

Ég þarf til að mynda ekki að vita að lítill kassi sem ég bý til sé 50,03403403403403 mm x 37,32032032032032 mm! Enda er þetta villa en ekki nákvæmnisárátta.

Con­tinue reading…

AI : Textaslitur

Ástæðan fyrir þessu er mis­munur á svoköl­luðum tex­tavélum í for­ritunum. Mjög sérhæft og ekki tök á að fara út í það hér frekar. Nema, – rétt að nefna að letur­breytin­gar svo sem fitun, gleikkun milli stafa og þess hát­tar fjölga slitrunum, eins og sést á myndinni.

Con­tinue reading…

PS : Að ná taki á mynd

Kemur ekki af og til fyrir hjá ykkur eit­th­vað svona:

  • Erum að vinna í mynd í Pho­to­shop. Segjum að þetta sé 800×600 px mynd, til dæmis bak­grun­nur í Pow­er­Point kynningu.
  • Opna aðra mynd til þess að ná í efni í myn­d­ina. Gæti verið til dæmis mynd úr ársskýrslu eða svipað sem kún­ninn vill fá inn í kyn­ninguna sína.
  • Myn­din dregin yfir.
  • Áts…! Myn­din kemur allt of stór á skjáinn, oft af því að hún er í miklu hærri upplausn. Við þur­fum að súmma út eða draga til hliðar til þess að ná tökum á myndinni.

Con­tinue reading…

ID : Þegar fi og fl brey­tast í þ og Þ

Sam­límin­gur, er skondið orð sem ég fann í orðabók sem þýðingu á enska orðinu Lig­a­ture. Lig­a­ture, sam­límin­gur er sta­fur sem hefur verið bræd­dur saman úr tveimur eða fleiri stö­fum og gerður að einum.

Con­tinue reading…

AI : Hvítt yfir í glært

Eitt af því sem mér finnst frábært við Illus­tra­tor CS2 er Trans­parency. Að geta þynnt liti og gert þá geg­n­sæa. Meiriháttar!

Ég var vanur að gera svona lagað í Pho­to­shop en mér finnst það alger frel­sun að geta unnið margt svona lagað í Illus­tra­tor og færa það hugsan­lega yfir í Pho­to­shop síðar. Þar með er engan veg­inn sagt að ég sé hæt­tur að nota Pho­to­shop fyrir svona vinnslu, en þetta er þægi­leg viðbót. Það er þó eitt sem Pho­to­shop virðist hafa fram yfir Illus­tra­tor. Það er að leyfa litum að þyn­nast út í ekki neitt. Bæði getur Pho­to­shop get þetta í Gra­di­ent og eins er hægt að setja tónun frá svörtu yfir í hvítt á Layer Mask til þess að ná þes­sum áhrifum.

Con­tinue reading…

Enn um skyn­diminni leturs, Font Cache files

Ég sagði einu sinni frá Font Fina­gler, for­riti sem er notað til þess að hreinsa tölvuna af svoköl­luðu letur skyn­diminni eða Font Cache eins og það heitir á engilsaxnesku.

Þessi skjöl sem eru oftast lei­far af fyrri leturnotkun eru oft til mikil­lar óþurf­tar og nauðsyn­legt fyrir þá sem nota mikið og fjöl­breytt úrval af letri að hreinsa þessi skjöl út af tölvunni af og til. Sérstak­lega ef ein­hver undar­leg hegðun gerir vart við sig varðandi letur.

Con­tinue reading…

AI : Vinnusvæði

Þegar þú ert að vinna í Illus­tra­tor –eða Pho­to­shop, eru palet­turnar út um allt? Ertu kannski að troða þeim út af glug­ganum og toga þær svo aftur inn á skjáinn til þess að geta notað þær?

Con­tinue reading…

AI : Kom­mur og punk­tar í innsláttargluggum

AI_ExcelFle­stir sem eru að nota Illus­tra­tor kan­nast við þann kvilla að þegar sle­gin er komma í innslát­tar­glugga, til dæmis þegar er verið að málsetja kassa eða letur, breytist kom­man í punkt og vil­lugluggi birtist sem segir: Invalid numeric value.

Con­tinue reading…

AI : AdobeFnt

AdobeFnt Ef þú pró­far setja adobefnt sem leitarorð á tölvunni þinni eru allar líkur á því að þú finnir alveg frá nokkrum upp í nokkur hun­druð slík skjöl. Eitt svona skjal myn­dast á tölvunni fyrir hvern Adobe font sem opnaður er. Con­tinue reading…

AI : ID : Lýsa og dekkja liti

Hér er eitt sem bók­staflega allir verða að kunna.

ColourSlideEf maður er að vinna með sér­lit, Spot Colour, í Illus­tra­tor eða InDe­sign er ein­falt að draga til sleðann á litasp­jald­inu til þess að fá ljósara afbrigði af lit­num í prósen­tum. Sama á líka við um í fjór­lit; hægt að draga hvern lit CMYK til til þess að breyta.

Snilldin er hins vegar sú að það er hægt að lýsa og dekkja liti á CMYK og RGB litaspjöl­dunum í hlut­falli af lit­num með því að draga til einn af sleðunum en halda Shift niðri á sama tíma.

Við þetta færast hinir sleðarnir með í réttu hlut­falli af upprunalega litnum.



Get Adobe Flash playerPlugin by wpburn.com wordpress themes

Copyright © 2004–2009. All rights reserved.

RSS Feed. This blog is proudly powered by Wordpress and uses Modern Clix, a theme by Rodrigo Galindez.