Archived entries for

Apple : Hvar er ég?

HvareregÞað kemur fyrir að maður er að vinna í ein­hverju skjali og er jafn­vel búinn að vista það þegar læðast að manni efasemdir um að maður hafi vis­tað í rétta möppu. Eit­th­vað svoleiðis … Þetta gæti líka verið ein­hver opin mappa síðan fyrir helgi og maður hefur ekki hugmynd um það lengur hver­rar ættar hún er. Þá er ekki verra að geta fengið upplýsin­gar um það án þess að þurfa að fara út úr skjal­inu eða möp­punni og fara að leita og gramsa. Con­tinue reading…

AI : Úr pílu í textatól

Smellbrell

Ég eins og svo mar­gir nota mér í Illus­tra­tor að fara úr hvaða tóli sem ég er að nota yfir svarta eða hvíta pílu með því að styðja á skipanah­nap­pinn, Com­mand. Um leið og maður slep­pir hnapp­num hel­dur maður áfram í því tóli Con­tinue reading…

AI : Punktalínur

Aipunktalinur

Margt af því sem ég skrifa hér kemur ein­faldlega til af því að ég hef sama dag eða nýlega verið að benda á það sama í vin­nunni. Gildir þá oft einu hvort menn eru með langa reynslu eða stutta. Það eru alltaf ein­hver göt sem má fylla upp í. Con­tinue reading…

Letur : Bil milli stafa, Kerning

LETbracketÞrátt fyrir að fle­stir þeir sem teikna letur vandi sig við að láta letrið skri­fast með jafnri áferð er engu að síður mjög erfitt að láta allt ganga upp. Annað af því hel­sta sem þeir gera þegar þeir hanna letrið er að reyna að stilla rýmið í kringum hvern staf Met­rics þan­nig að það sé nánast sama hvaða staf maður setur svo niður næst að hann falli vel að og í heil­d­ina fái maður jafna og eðlilega áferð á textann.

Það sem á van­tar er bætt upp með því að setja svoköl­luð Kern­ing Pairs inn í letrið. Kern­ing Pairs er ekkert sem maður sér í letrinu sjálfu, hel­dur eru þetta töflur sem fal­dar eru inni í letrinu og virk­jast aðeins þegar tiltek­nar stafasam­stæður eru skri­faðar. Sem dæmi um algen­gar stafasam­stæður eru Va, Ta, Ya og VA. Og reyn­dar miklu fleiri.

Con­tinue reading…

ID : Leiðar­línur, Guides

IDlogo_guidesLeiðar­línur, Guides, í InDe­sign eru afar gagn­le­gar við umbrot hvers konar. Þær eru ein­faldlega dreg­nar út úr reglustikunni, rétt eins og í Illus­tra­tor og Pho­to­shop.

Algeng vin­nubrögð eru að setja inn leiðar­línur á grunnsíðurnar, Mas­ter þan­nig að þær komi fram á öllum síðum. En svo uppgöt­var maður kannski í miðjum klíðum að gott væri að bæta við einni hér og annarri þar. Con­tinue reading…

PS : Sjálf­valið lag, Auto Select Layer

PhotoshopÞegar maður vin­nur með mörg lög í Pho­to­shop getur verið mjög þægi­legt að hafa still­inguna Auto Select Layer á. Þetta er sett á þarna uppi vin­stra megin í stjórn­ræ­munni. AutoSelectLayer2Þegar er hakað í kas­sann þarna velst eftir það sjálfkrafa það lag sem maður smellir á í hvert skipti í stað þess að þurfa alltaf að fara í Lay­ers pal­let­tuna og velja það lag sem á að fara að vinna í næst eða færa til.

Con­tinue reading…

PS : ID : Lap­par, Con­tact Sheet

PhotoshopCS2Allir þurfa ein­hvern tíma að búa til „kon­takta“ af myn­dum sem þeir eru með í tölvutæku formi. Mér sýnist vel hægt að nota orðið lappi yfir Con­tact Sheet, þótt lappi hafi oftast verið notað yfir lit­lar hál­fun­nar portret­myn­dir. Kon­tak­tar í upprunalegu merkingunni þýðir afrit af filmu og það orð sem maður notar oftast um fyrir­bærið. En hví ekki að nota bara orðið lappi?

Con­tinue reading…

PDF : Þrey­tandi pdf valko­stir í Office

OfficePDF

MacOsX stýrik­er­fið gefur það fína kosti við vis­tun pdf skráa að það er hreinn óþarfi fyrir flesta að vera að burðast með þar til gerða pal­lettu í Office for­ritunum Word, Pow­er­Point og Excel. Con­tinue reading…

Safari : PDF skjöl

AcrobatskrautÞað er nú ansi mis­jafnt hvað maður getur ætlað sér þegar maður rekst á pdf skrár á net­inu. Það er hins vegar mjög oft sem maður þarf að taka ein­hver­jar ákvarðanir um það. Stun­dum vill maður rétt kíkja á skrá áður en maður dre­gur hana til sín, en stun­dum er maður nógu san­n­færður um að maður vilji eiga skránna og vill hala hana niður en skoða hana síðar. Con­tinue reading…

Íslen­ska í Firefox

FIREfox2Hvað ætli sé búið að fjalla oft um það á apple.is hvort íslen­ska eða enska eigi að vera ofar í Sys­tem Pref­er­ences — Inter­na­tional — Lan­guages? Umræðan mun eflaust halda áfram eit­th­vað um sinn. Í það minnsta þar til alfarið verður hægt að hafa íslen­skuna efst — eins og hún ætti að vera. Con­tinue reading…



Get Adobe Flash playerPlugin by wpburn.com wordpress themes

Copyright © 2004–2009. All rights reserved.

RSS Feed. This blog is proudly powered by Wordpress and uses Modern Clix, a theme by Rodrigo Galindez.