FontLab Studio
FontLab er loksins komið út í útgáfu 5. Nafninu hefur reyndar verið breytt í FontLabStudio. Árið hefur verið mjög fjörugt hjá FontLab en fyrirtækið hefur ungað út einum tólf stórum uppfærslum og/eða nýjum leturforritum á þessu ári. Ég nota þetta forrit talsvert til alls kyns viðgerða á letri og smá rökkurvinnu við mitt eigið letur (þetta sem er í hausnum á síðunni).

