Archived entries for

Draga texta yfir á skjáborð og laga með ClipEdit

CLIPeditSú var tíðin að ég var með að jaf­naði milli tvö og þrjúhun­druð skjöl á skjáborðinu hjá mér. Þetta var þegar kerfi 9 var upp á sitt besta. Þegar tían mætti á staðinn vandi ég mig af þessu og skip­u­lagið er í hel­dur skárra ástandi í dag.

Con­tinue reading…

Mótun texta með málsgreinastillingum

Reglur eru til þess að brjóta þær segja mar­gir. Ég get svo sem alveg tekið undir það — upp að vissu marki í það minnsta. En stun­dum þegar maður sér reglur brot­nar í leturmeðferð fær maður sterklega á til­finninguna að sá sem braut reglurnar viti ekki hver­jar þær eru.

Con­tinue reading…

Fontog­ra­pher fyrir MacOsX

FOGiconLöng bið er loksins á enda: Fontog­ra­pher 4.7 er kominn út. Nú er loksins hægt að nota það án þess að ræsa upp Clas­sic. Fontog­ra­pher hefur verið langmest notaða for­ri­tið til leturhön­nunar á mökkum. Þótt Font­Lab hafi tekið við þessu hlutverki af Fontog­ra­pher hafa mar­gir sak­nað ein­faldleikans sem Fontog­ra­pher býður upp á. Fontog­ra­pher var upphaflega skri­fað af Alt­sys, þeim sömu og bjuggu til Free­Hand. Teik­nun í for­rit­inu í vec­tor hefur alltaf verið svipuð og var í Free­hand 3.

Con­tinue reading…

ID : Umbrotsskjöl færð milli Quark og InDesign

InDe­sign getur opnað Quark skjöl og vis­tað þau í sitt eigið snið. Þessi viðs­núningur er furðu góður en gallinn er sá að Quark skjalið þarf að vera vis­tað sem Quark 4 skjal. Þetta þýðir að ef skjal sem á að færa yfir er unnið í Quark 6 þarf fyrst að vista sem Quark 5 skjal, opna Quark 5 for­ri­tið og vista svo niður sem Quark 4. Þetta er frekar leiðin­leg leið en ef fólk þarf oft að gera þetta munu menn væn­tan­lega koma sér upp uppset­ningu þan­nig að Quark 5 sé inni á vélinni tilbúið til notkunar.

Con­tinue reading…

ID : Meira um orðskiptingar

INDIhyphÞað er alltaf fen­gur í því að fá ábend­ningar um góðar viðbæ­tur með for­ri­tum. Ég fékk eina slíka um síðustu helgi. Það er langþráð íslensk orðskip­tiviðbót, InDi­hyph fyrir InDe­sign og ein­nig íslensk stafset­ningarviðbót InDi­tect.

Con­tinue reading…

Spot­light, Spot­less, Quicksilver

SPOTlightlogoEinn stærsti kos­turinn við Tiger finnst mér vera Spot­light. Spot­light skan­nar alla diska sem tengdir eru við tölvuna einu sinni og endurný­jar svo lis­tann daglega. Ekki er nóg með að listinn inni­haldi skjalanöfn, hel­dur inni­hald skjala líka hvort hel­dur sem er í pósti eða pdf skjölum. Þan­nig fást víðát­tumik­lar upplýsin­gar um inni­hald tölvun­nar órtúlega möguleika til þess að gramsa auðveldlega í þeim.

Con­tinue reading…



Get Adobe Flash playerPlugin by wpburn.com wordpress themes

Copyright © 2004–2009. All rights reserved.

RSS Feed. This blog is proudly powered by Wordpress and uses Modern Clix, a theme by Rodrigo Galindez.