Skjáskot fyrir alla
Ég nota næstum hvern einasta dag skjáskot, það er að segja, myndir af því sem sést á skjánum, heilum gluggum eða hluta. Einnig, og það er það sem ég nota mest, er að taka t.d. skot af því sem ég er að vinna í Illustrator og líma það inn í Photoshop til staðsetningar. Eins nota ég skjámyndir í Illustrator í sama tilgangi.
Skjámyndir eru bara í 72pt upplausn, en þegar maður er búinn að teygja myndina á layer í Photoshop er hún furðuskýr þótt stækkunin sé margföld. Continue reading…

