Afletrun
Fyrir mig, sem hef unnið í mörg ár við að búa til auglýsingar, skilti, bókakápur og hvað eina sem erti augað, er afar athyglisvert að velta því fyrir mér hvernig umhverfi okkar liti út án þessara verka. Tveir austurrískir listamenn Rainer Dempf og Christoph Steinbrener láta sér ekki nægja að hugsa um þetta heldur hrinda því í framkvæmd með því að hylja allt þetta, auglýsingar, vörumerki og skilti með gulum lit. Spurningin er bara hvort er þetta meira æpandi fyrir eða eftir? Skoða hér




