2008.07 Italy – Umbria
Þá var förinni heitið til Úmbríu. Nánar tiltekið til bæjar sem heitir Foligno. Þessi bær hefur svo sem ekki margt að bjóða svo sem í túristalegu tilliti. Tiltölulega lítill bær og gamla miðbænum innan borgarmúranna gömlu ekki vel við haldið. Gamla kirkjan er svo sem á sínum stað og stóra torgið en ekki þessi gamli bragur á öllu. Fullt af nýrri byggingum frá ýmsum tímum og heildarbragurinn ekki sérlega heillandi. Continue reading…


Nú er ég lentur í sumarfríi. Og enn eina ferðina er það Ítalía. Líklega er þetta í níunda skipti sem við förum til Ítalíu. Ég ætla að skrá ferðina niður eftir því sem tími gefst til en það hefur oftast reynst þrautin þyngri. Oftast er ekki mikill tími aflögu til skrifta og internetsambandið getur verið svona og svona.
