Apple : Leitarmöppur, Smart Folders
Fyrirbæri sem kallað er Smart Folder er hentugt til margra nota. Snilldin í þessum möppum er fyrst og fremst sú að þær eru eins konar leitarmöppur. Maður skilgreinir hvað maður vill að birtist í henni, hvar á að leita, hvers konar skjöl og svo framvegis rétt eins og þegar maður leitar með slaufa + F. Þessi skilgreining helst síðan áfram ef maður geymir þessa möppu og innihaldið uppfærist jafnharðan ef breytingar verða, skjal bætist við eða einhverju er hent.
Þannig getur maður haft aðgang á einum stað að skjölum sem dreifð eru um alla tölvuna, opnað þessi skjöl eða þá hent ef maður vill.
Þessa virkni er að finna í hliðarglugganum í iTunes í möppunum My Top Rated, Top 25 Most Played og fleirum og þar má einnig breyta skilgreiningunum á leitinni sem þar fer fram.
Mail póstforritið er líka með leitarmöppur af þessu tagi. Þar heita þær Smart Mailbox.
En til hvers ætti maður að nota þessar leitar– eða snillimöppur?
Það fer auðvitað eftir þörfum hvers og eins. Hugsum sem svo: Hverjir eru þeir hlutir sem ég er alltaf að leita að, aftur og aftur? Markmiðið er að gera sér lífið aðeins léttara. Eyðum nokkrum mínútum í að læra að gera eitthvað á nýjan hátt sem sparar okkur ómældar mínútur síðar.
Sem dæmi um Smart Mailbox notkun í Mail, nota ég þær möppur gjarnan til þess að halda utan um samskipti við einhverja aðila þegar um er að ræða verkefni sem spannar langan tíma, nokkrar vikur eða mánuði. Þá set ég upp stillingu sem sækir alla pósta til og frá jonjonsson@netfang.is. Þetta Smart Mailbox fær svo vísast nafnið JonJonsson eða Risaverkefni. Svo hendi ég möppunni síðar þegar ekki eru lengur not fyrir hana en pósturinn helst á sínum stað í sínu inn– eða útboxi. Leitarmappan veitir mér aðgang að póstunum eins og þeir væru allir í sama pósthólfi. Til þess að búa til svona möppu er hægt að fara annað hvort í Mailbox > New Smart Mailbox… eða ýta á tannhjólið neðst í hliðarglugganum: New Smart Mailbox….
Á tölvunni sjálfri, eða í Finder eins og oftast er sagt langar mig að nefna smá dæmi til þess að gefa hugmynd um notagildi.
Ég hef nefnt hér áður að best er að hreinsa reglulega út skjöl af tölvunni sem heita AdobeFnt. Þessi skjöl eru oft völd að veseni í Illustrator og InDesign. En af því ég er búinn að vera svo lengi í þessu stússi veit ég að það eru aðeins örfáir sem gefa sér tíma (lesist: nenna ekki) til þess að gera þetta. Hvernig væri nú að gera þetta nú einu sinni en nota Smart Folder til þess að finna þessi leiðindaskjöl?
- Í Finder förum við í File > New Smart Folder. Ný mappa opnast. Þá er að skilgreina hvað við viljum að birtist í þessari möppu.
- Látum fyrstu tvær skilgreiningarnar vera eins og þær koma fyrir, Kind — Any og Last Opened — Any Date.
- Nú bætum smellum við á plúsinn og ný lína bætist við. Setjum þessa línu í: Name — Begins With og í reitinn skrifum við: AdobeFnt.
- Við viljum ekki að AdobeFnt.db birtist í möppunni og því bætum við aftur við línu og stillum hana þannig: Name — Ends With og í reitinn skrifum við: .lst
Nú smellum við á Save hnappinn. Þegar næsti gluggi kemur upp getum við vistað eins og þetta kemur fyrir í þetta skipti og hann bætist við í hliðargluggann. Þeir sem nota hliðargluggann mikið eins og ég sjá kannski á eftir plássinu og geta þá vistað á skjáborðið og fært svo möppuna þangð sem þeir vilja hafa hana.
Alltaf er hægt að fara í stillingarnar aftur síðar og breyta ef einhver skilyrði breytast.
Þá er ekki annað eftir en að fara í möppuna og henda öllum þessum skjölum, en þar sem örugglega munu bætast sams konar skjöl aftur er fínt að kíkja í hana eftir svona mánuð og henda aftur. Ágætt að búa til áminningu í iCal um að gera þetta mánaðarlega.
Related posts:

