PS : Lituð lög (Layer)

PScolourLayersÞegar ég er að vinna flókin verk í Pho­to­shop með mörg lög (Lay­ers), marga tugi jafn­vel, nota ég mér gjar­nan ýmis tól sem for­ri­tið býður upp á til þess að koma skip­u­lagi á verk­fer­lið. Það er hægt að notast við margt svo sem að velja saman í Group. Annað sem oft gag­nast vel er að lita lögin sjálf.

Vanalega er þetta gert með því að fara í þríhyrninginn í Layer Palet­tunni, Fly­Out eins og það er kallað á ensku og þar í Layer Prop­er­ties. Tvís­melling á Lay­erinn kemur manni á sama stað. Þar er hægt að velja um nokkra liti til þess að aðgreina hluta úr verk­inu með litamerkingu.

Ég nota þetta mjög mikið og varð því hel­dur betur ánægður þegar mér var bent á að með því að pota með pílunni í augað á lay­er­num og halda á sama tíma niðri stjórnhnapp­num (Con­trol, Ctrl) birtist manni þetta fróma litaspjald.

Tíminn sem fer að lita­merkja á þen­nan hátt er margfalt styt­tri en áður var.

Related posts:

  1. PS : Afrita layer
  2. PS : Sameina lög í eitt nýtt lag