Lino­type Font­Ex­plor­erX (FEX) komið út

FEXspjald

Það fer lík­lega ekki framhjá neinum sem hefur lesið pist­lana mína að ég er mjög hal­lur undir Font­Ex­plor­erX frá Lino­type. Undan­farna mánuði hefur verið í gangi svokallað Pub­lic Beta, það er, öllum leyft að ná sér í for­ri­tið á þróu­narstigi. Önnur for­rit eins og til dæmis Suit­case Fusion bjóða upp á aðra eða fleiri möguleika en FEX er með allt sem maður þarf og gott betur. Á móti kemur að FEX er ókeypis en Fusion kostar í kringum hun­drað dol­lara. Ég er búinn að setja for­ri­tið á fimmtán tölvur eða meira og það slær ekki feilpúst.

Í dag kom svo Font­Ex­plor­erX út í lokaút­gáfu og hægt er að nál­gast það á linotype.com Nokkru hefur enn verið bætt inn í for­ri­tið og smávil­lur lagfærðar.

Mjög góðar leiðbeiningar eru í Help og útskýra þær flest ef ekki allt sem fyrir finnst í still­ingahluta for­ritsins. Ég var búinn að skrifa leiðbeiningar áður um hvernig skal bera sig við að koma for­rit­inu inn. Mér sýnist í fljótu bragði að allt standi sem þar er skri­fað en það gæti þó verið að ég bæti við ein­hverju síðar. Það sem mér finnst vanta helst er að útlista verk­lag í þessu for­riti eins og í svo mör­gum öðrum. Sjáum til.

Related posts:

  1. Font Explorer X frá Linotype
  2. Suit­case Fusion
  3. Font­Lab Studio