Dock á floti

Stundum… segjum frekar oft, lendir maður í þeirri stöðu að þurfa að skipta oft og títt á milli tveggja eða fleiri forrita. Þetta er til dæmis þegar maður er að klippa texta úr Mail til þess að setja inn í Illustratorskjal. Þegar maður límir texta inn í Illustrator færist textinn í þá leturgerð og stærð sem fyrir er í hverju textaboxi fyrir sig og þess vegna tekur maður málsgrein fyrir málsgein eða eftir því sem hentugast er, í stað þess að taka allan textann yfir í einu. Og svo framvegis. Ótal önnur dæmi væri hægt að taka.
Við svona aðgerðir sem kalla á tíða skiptingu milli tveggja forrita er fátt hentugra við að fara milli þeirra en að nota skipanahnappinn og dálkahnappinn saman (Command + Tab). Flestir kannast við þennan möguleika, en mun færri nýta sér hann.
Það sem gerist er að táknmyndalisti opnast sem sýnir öll opin forrit. Það forrit sem er í forgrunni er merkt með dökkum, hvítútlínuðum fleti og nafn forritsins undir. Jafnframt er reglan sú að forritið í forgrunni er alltaf lengst til vinstri. Til þess að færa valið er Tab hnappnum smellt aftur og aftur niður meðan Command hnappnum er haldið niðri.
Til þess að færa valið aftur á bak er Shift bætt við. Það verður þá: Command + Shift + Tab. Ekki má heldur gleyma að í stað þess að smella ótt og títt á Tab hnappinn getur notað músina til þess að velja það forrit sem fara á í.
Forritin á listanum umstaflast svo frá vinstri þannig að það forrit sem var notað síðast er annað á listanum og þar síðast þriðja og svo framvegis. En það sem rak á eftir mér að skrifa þetta er að með því að smella á Command og eitt smell á Tab skiptir yfir í síðasta virka forrit. Það er því lykillinn að hröðum skiptingum milli tveggja forrita.
Related posts:

